Sýningarstjórnun:
Tækifæri/ potential
Hönnunarmars 2026
North of Tomorrow
Dutch Design Week 2026
Menntun
Myndlistaskólinn í Reykjavík 2023-2024
Fornám
Listaháskóli Íslands 2024-
BA í Vöruhönnun
Info
Sara Guðnadóttir
Netfang: saragudna@gmail.com
Instagram: @saragudnadottir
+356 894-7272
Sara Guðnadóttir er forvitinn og fjölhæfur hönnuður sem nálgast hönnun út frá fólki, tilfinningum og upplifunum.
Hún dregur innblástur frá sögum fólks, náttúrunni, mannlegum tengslum og því hvernig hönnun getur haft áhrif á líðan okkar og samskipti við umheiminn.
Hún þrífst á því að skapa merkingu, kafa djúpt í ólíka hugarheima og finna hið áhugaverða í hversdagsleikanum. Hlátur og leikgleði skipa stóran sess í lífi hennar og hefur hún því áhuga á hvernig húmor, óvænt augnablik og sameiginleg upplifun geta fært fólk nær hvert öðru. Hún leitast við að finna fegurð og gleði í hinu hversdagslega og skapa upplifanir sem vekja tilfinningar, forvitni eða jafnvel bros.
Sara er næm á umhverfið sitt, smámunasöm og lausnamiðuð. Hún hefur gaman af því að rannsaka, tengja saman ólíka heima og vinna með sögur og hugmyndir sem eru ekki alltaf áþreifanlegar. Hún lítur á hönnun sem tækifæri til að gefa tilfinningum og upplifunum fast form, vekja fólk til umhugsunar og skapa eitthvað sem hefur merkingu umfram hlutinn sjálfan.
Umfram allt er hún hönnuður sem vill snerta við fólki, skapa tengingar og skilja eftir sig eitthvað gott í lífi annarra.