J a r ð t e n g i n g
S a r a G u ð n a d ó t t i r ( 2 0 2 4 )
Verkefnið, Jarðtenging, er hugsað sem upphaf hugarfarsbreytinga sem helst í hendur við venjur okkar og hegðun gagnvart jarðveginum og lífríki hans.
Jarðtenging er viðburður sem hægt er að staðsetja á landsvísu.
Viðburðurinn býður fólki að koma í leidda berfætta gönguleið í formi skilta sem segja frá eiginleikum jarðvegsins, hjálparhellum hans og þörfum.
Fólk fær tækifæri til að mæta jarðveginum á persónulegan hátt með því að tengja bæði líkamann og hug við hann.
Verkefnið Jarðtenging er ætlað til að gefa fólki hugarnesti um framkomu okkar við jarðveginn.
Með áframhaldandi óbreyttri hegðun gæti tenging okkar við hann versnað.