S a r a G u ð n a d ó t t i r ( 2 0 2 6 )
Á sýningunni komu saman sex verkefni sem horfðu til framtíðarinnar út frá íslensku sjónarhorni og veltu upp spurningunni um hvað gæti gerst ef við nálguðumst núverandi kerfi, efnivið og tækni á annan hátt.
Í stað þess að líta á framtíðina sem eitthvað fjarlægt eða fyrirfram ákveðið var hún skoðuð sem eitthvað sem er í mótun hér og nú. Með efnistilraunum, stafrænum kerfum, gervigreind og tilraunakenndri nálgun á hönnun veltu verkefnin upp spurningum um hvernig við búum til, notum og tengjumst hlutunum í kringum okkur.
Verkefnin voru á mörkum hins kunnuglega og ókunnuga og beindu sjónum að þeirri ábyrgð sem fylgir nýjum möguleikum.
Sýningin var í senn gagnrýnin, innsýn inn í hið óþekkta og tillaga að nýjum leiðum. North of Tomorrow bauð gestum að velta fyrir sér ólíkum framtíðum sem enn eru opnar fyrir umræðu og mótun.
Myndir eftir Björn Steinar Blumenstein