Það sem býr að baki hugtaksins er sú hugmynd að hver og ein manneskja sem gengur framhjá þér á sér eins margslungið og flókið líf og þú.
Hugtakið er aðeins um 10 ára gamalt og því ekki aragrúi af verkefnum til að skoða í tengslum við hönnunarsöguna. Þó er eitthvað um samfélagsverkefni,
listaverk og ljósmyndaseríur sem snerta á hugtakinu óbeint og beint. Flest snúast verkin sem hægt er að rýna í í samhengi Sonder ganga mikið
út á samkennd, sem er systirhugtak sonder en ekki það sama.
Mikilvægi sonder í hönnun, og sömuleiðis heiminum, er mikið og vanmetið.
Heimurinn skortir umburðarlyndi og færni til að raunverulega setja sig í spor ókunnugra í hversdagsleikanum, og þeirra sem umkringja okkur í lífinu.
Við erum sjálfhverfari en við teljum okkur trú um og það skiptir sköpum að veita hvort öðru meiri athygli, forvitni og skilning á lífum annarra
til að leiða að meiri jöfnuði milli manna og hafa áhrif á lífsgæði manneskja á þessari jörðu.