Það sem býr að baki hugtaksins er sú hugmynd að hver og ein manneskja sem gengur framhjá þér á sér eins margslungið og flókið líf og þú.
Hugtakið er aðeins um 10 ára gamalt og því ekki aragrúi af verkefnum til að skoða í tengslum við hönnunarsöguna. Þó er eitthvað um samfélagsverkefni,
listaverk og ljósmyndaseríur sem snerta á hugtakinu óbeint og beint. Flest snúast verkin sem hægt er að rýna í í samhengi Sonder ganga mikið
út á samkennd, sem er systirhugtak sonder en ekki það sama.
Mikilvægi sonder í hönnun, og sömuleiðis heiminum, er mikið og vanmetið.
Heimurinn skortir umburðarlyndi og færni til að raunverulega setja sig í spor ókunnugra í hversdagsleikanum, og þeirra sem umkringja okkur í lífinu.
Við erum sjálfhverfari en við teljum okkur trú um og það skiptir sköpum að veita hvort öðru meiri athygli, forvitni og skilning á lífum annarra
til að leiða að meiri jöfnuði milli manna og hafa áhrif á lífsgæði manneskja á þessari jörðu.
Upplifunarsýning þar sem Langarica notar rýmishönnun, hljóð og skuggamyndir manneskja til að vekja meðvitund um líf ókunnugra í rýminu.
Verkið hvetur gesti til að upplifa margbreytileika mannlegs lífs og átta sig á að hver einstaklingur eigi sér jafn flókna og merkingamikið líf og þeir sjálfir.
https://lucialangarica.framer.website/projects/sonder
Þátttökuverk þar sem fólk skrifar nafnlausar, persónulegar frásagnir sem sýningargestir og aðrir geta lesið.
Verkið gefur innsýn í tilfinningar og reynsluheim annarra, og skapar bæði samkennd og tengsl milli fólks sem hefur aldrei hist.
https://www.thelexingtonline.com/blog/2023/4/28/the-strangers-project-the-meaning-behind-sonder
Ljósmyndasería sem rannsakar karlmennsku, nánd og tilfinningaleg tengsl innan tíu fjölskyldna í London og Taichung í Taívan.
Verkið dregur fram hversdagsleg augnablik umhyggju og berskjöldunar milli karlmanna, og ögrar á sama tíma hugmyndum um hvernig karlar tjá tilfinningar sínar.
https://wepresent.wetransfer.com/stories/adam-lin-photography-sonder?
Gagnvirk innsetning þar sem tveir einstaklingar á ólíkum stöðum geta fundið púls hvors annars í gegnum samtengda snertiskynjara.
Verkið skapar líkamlega tengingu í fjarlægð og rannsakar mannlega nánd, samskipti og tengsl ókunnugra. Verkið hefur verið sett upp á mörgum stöðum.
https://lozano-hemmer.com/artworks/remote_pulse.php?
Alþjóðlegt samfélagsverkefni þar sem fólk er „gefið í útlán“ eins og bækur á bókasafni. Fólkið sem er „leigt“ deilir persónulegri reynslu sinni í samtölum við ókunnuga.
Verkefnið leitast við að brjóta niður staðalmyndir og fordóma, efla samkennd og skapa dýpri skilning á ólíkum lífum. Hugmyndin fæddist í Danmörku en „bókasafnið“ er sagt hafa náð til um 80 landa.
https://humanlibrary.org/
Gagnvirkt kort af heiminum þar sem fólk getur merkt staði sem tengjast persónulegum minningum, tilfinningum og augnablikum í lífi þess.
Verkefnið gerir ósýnilegar sögur ókunnugra sýnilegar og sýnir hvernig sömu staðir geta haft ólíka tilfinningalega merkingu fyrir mismunandi einstaklinga. Einstaklega fallegt og forvitnilegt að skoða.
https://amapof.us/
Þátttökuverkefni þar sem fólk sendir nafnlaus, handgerð póstkort með persónulegum upplýsingum; leyndarmálum, hugsunum og tilfinningum.
Verkið sameinar póstkortin og myndræna tjáningu til að veita innsýn í innra líf ókunnugra og varpa ljósi á sameiginlega mannlega reynslu.
https://museum.postsecret.com/the-early-days-of-postsecret/?
Ljósmyndasería þar sem Susan Meiselas myndaði nágranna sína á 44 Irving street inn á heimilum þeirra og bað þá síðan að skrifa um hvernig þeir upplifðu myndina sem var tekin af þeim.
Verkið rannsakar sambandið milli ásýndar (hvernig hlutirnir virðast vera) og sjálfsmyndar, og dregur fram hvernig persónulegar frásagnir geta afhjúpað hliðar á lífi fólks sem ljósmyndir einar ná ekki að sýna.
https://www.susanmeiselas.com/44-irving-street
Ljósmyndasería þar sem Daniel Meadows endurheimti samband við einstaklinga á árunum 1995 - 2000, sem hann hafði tekið myndir af 1974, og tók af þeim nýjar myndir ásamt því að skrásetja frásagnir þeirra um lífið.
Verkið sýnir hvernig líf fólks þróast með tímanum og veitir innsýn í persónulegar breytingar, lífsreynslu og sögur ókunnugra.
https://www.danielmeadows.co.uk/gallery/photographs/free-photographic-omnibus-now-and-then-portraits-1974-and-1995-2000
Ljósmyndasería þar sem ókunnugt fólk á götum London eru fenging til að skrifa eigin hugsanir, skoðanir eða tilfinningar á skilti og stilla sér upp með því á mynd.
Verkið dregur fram innra líf fólks og sýnir hvernig hver einstaklingur hefur sínar hugsanir og tilfinningar sem sjást ekki að utanverðu.
https://publicdelivery.org/gillian-wearing-signs/?
Þátttökuverk þar sem gestir skrifa óskir og vonir á miða og hengja á tré, sem verður að samansafni vona og drauma ókunnugra.
Verkið gerir ósýnilega draumóra fólks sýnilega og skapar tengsl í gegnum sameiginlega mannlega reynslu.
https://wanaskonst.se/en/samling/ono-yoko/
Heimildarmynd gerð í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar við London Bridge árið 2017 til að sýna styrk og samstöðu samfélagsins í London.
Stuttmyndin byggir á hugtakinu sonder og undirstrikar mannleg tengsl og „sameiginlega mennsku“ ókunnugra.
https://www.annamarieramm.com/film/sonder?utm_source=chatgpt.com
Bandarískt samfélagsverkefni sem safnar og varðveitir sögur fólks alls staðar að úr heiminum í gegnum hljóðrituð samtöl.
Verkefnið miðlar fjölbreyttri lífsreynslu einstaklinga með það að markmiði að auka samkennd, mannleg tengsl og skilning okkar á lífi annarra.
https://storycorps.org/
Ljósmyndasería þar sem James Mollison tók myndir af börnum og svefnherbergjum víðsvegar, og stillir þeim upp saman.
Verkið dregur fram ólíkar uppeldisaðstæður, ólíka menningarheima og hvernig svefnherbergi getur endurspeglað líf barnanna.
https://www.jamesmollison.com/projects-link/where-children-sleep?
Samfélagsverkefni gert í kvikmyndaráfanga þar sem fimm pör framhaldsskólanema frá ólíkum hverfum í Massachusetts upplifa hversdag hvors annars í sólarhring og gera stuttmyndir um reynsluna.
Verkefnið miðar að því að efla samkennd, brjóta niður staðalmyndir og skapa dýpri skilning á lífi og aðstæðum annarra, með þvi að reyna setja sig í fótspor hvers annars.
https://ema-foundation.webflow.io/article/five-pairs-five-films-one-question-whats-it-like-in-your-shoes?
Ljósmyndasería sem rannsakar stéttaskiptingu og ólíkar lífsaðstæður hjá fólki í San Francisco með ljósmyndum og handskrifuðum frásögnum þátttakenda.
Verkið dregur fram hvernig fólk í mismunandi stéttum getur upplifað svipaðar tilfinningar í sínu persónulega lífi, þrátt fyrir ólíka félagslega og efnahagslega stöðu.
https://www.magnumphotos.com/newsroom/society/jim-goldberg-rich-and-poor/
Alþjóðleg góðgerðarsamtök sem vinna að bættum lífskjörum mismunandi samfélaga í Búrkína Fasó og Malaví með fókus á aðgengi að hreinu vatni, menntun og sjálfbærum landbúnaði.
Verkefnið byggir á samfélagslegri ábyrgð og því að skapa varanleg tækifæri fyrir fólk sem býr við fátækt.
https://thesonderproject.org/
Ljósmyndaverkefni sem skoðar þéttbýli og líf fólks í Hong Kong með myndum sem sýna inn í fjölbýlishús og líf íbúa í heimilum sínum.
Verkið dregur fram hvernig ólíkir einstaklingar skapa sér heimili sem einkennir hversdag þeirra.
https://photomichaelwolf.com/#book-hong-kong-inside-outside/5
Verkefni þar sem ókunnugu fólki er boðið í tebolla og samtal um lífið, persónulegar reynslur og tilfinningar.
Verkefnið dregur fram fjölbreytileika í mannlegri reynslu og sýnir hvernig einföld samskipti geta myndað tengsl milli ókunnugra.
https://www.instagram.com/a_mug_of_life/reels/
Ljósmynda- og söguverkefni sem skrásetur persónulegar sögur fólks um allan heim, tilfinningar og lífsreynslu ókunnugs fólks með myndum og viðtölum.
Verkefnið dregur fram fjölbreytileika mismunandi líf fólks og veitir innsýn í þann reynsluheim sem fólk býr að baki.
https://brandonstanton.com/humans-of-new-york?
Ljósmyndasería þar sem Richard tekur myndir af ókunnugu fólki sem er fengið til að stilla sér upp saman með sýnilegri líkamlegri nánd, með faðmlögum eða annarri snertingu.
Serían rannsakar mannleg tengsl og hvernig tengsl geta myndast milli ókunnugra einstaklinga sem hafa aldrei hist áður.
https://renaldi.com/touching-strangers/?#1
Samfélagsverkefni sem stuðlar að geðrækt ungmenna/ unglinga með samtölum, tækni og hljóðfrásögnum.
Verkefnið skapar öruggt rými fyrir ungt fólk til að skilja og tjá tilfinningar sínar, efla sjálfsvitund og mynda tengsl við aðra á sama aldri.
https://hoangnhien.com/projects/sonder/
Myndlistarverk á lestarstöð í Los Angeles þar sem myndir af fólki úr nærumhverfinu er komið fyrir þar sem lestir keyra framhjá, í bakgrunn myndanna eru orð sem tengjast orðinu sonder.
Verkið hvetur lestarfarþega og fólk á stöðunum til að veita ókunnugum athygli og gera sér grein fyrir því að hver manneskja eigi sína einstöku sögu.
https://art.metro.net/artworks/sonder/?utm_source=chatgpt.com
Stafrænt myndlistarverk þar sem gluggar úr íbúðum sem Kathrine hefur safnað í nokkur ár lýsist upp og dökknar samkvæmt reikniriti, og á að tákna fjölbreytt líf og sögur ókunnugra.
Verkið undirstrikar margbreytileika tilveru okkar og hvernig líf einstaklinga tengjast og hafa áhrif hvert á annað.
https://www.design.ucla.edu/people/work/sonder?utm_source=chatgpt.com
Samfélagsverkefni sem safnar og birtir bréf frá föngum, þar sem einstaklingar segja frá reynslu sinni af lífinu, réttarkerfinu og fangelsisvist.
Verkefnið gefur föngum rödd og veitir almenningi innsýn í persónulegar sögur og aðstæður sem annars eru frekar ósýnilegar.
https://prisonlettersproject.org/prison-letters
Þátttökuverkefni sem safnar nafnlausum frásögnum fólks um tilfinningar, minningar og persónulega lífsreynslu.
Svörunum verður umbreytt í bókverk og gagnvirka innsetningu þar sem litakóðuð sjónræn upplýsingar draga fram sameiginlega reynslu fólks og stuðla að samkennd og mannlegum tengslum.
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeN0gyId1yfqACvWGA-Biebdh3c1t5e1khgOuKKOXR27BA1Pw/viewform
Hönnunarverkefni sem kannar ósýnileg tengsl fjögurra ókunnugra einstaklinga í sama hverfi í New York.
Verkefnið dregur fram hvernig líf ókunnugra fléttast saman án þess að þau geri sér grein fyrir því.
https://mfadt.parsons.edu/2014/project/sonder?utm_source=chatgpt.com
Gagnvirk innsetning sem rannsakar mannleg tengsl og ósýnilegt líf fólks í kringum okkur. Fólk leggur lófa sinn á box og þá byrjar að spilast hljóðmynd af manneskjum tala og fleira.
Innsetningin samanstendur af hreyfigrafík og upplifunarhönnun til að vekja tilfinningar og meðvitund um líf annarra.
https://graduatearchive.mtu.ie/artist/artists-adam-turner/?utm_source=chatgpt.com
P e r s o n a l i n t e r e s t m a p
Alþjóðleg góðgerðarsamtök sem vinna að bættum lífskjörum mismunandi samfélaga í Búrkína Fasó og Malaví með fókus á aðgengi að hreinu vatni, menntun og sjálfbærum landbúnaði.
Verkefnið byggir á samfélagslegri ábyrgð og því að skapa varanleg tækifæri fyrir fólk sem býr við fátækt.
https://thesonderproject.org/
saragudna@gmail.com
@saragudnadottir
Forvitinn og fjölhæfur hönnuður sem nálgast hönnun út frá fólki, tilfinningum og upplifunum. Ég dreg innblástur frá sögum fólks, náttúrunni, mannlegum tengslum og því hvernig hönnun getur haft áhrif á líðan okkar og samskipti við umheiminn.
Ég hrífst af því að skapa merkingu, kafa djúpt í mismunandi hugarheima og finna hið áhugaverða í hversdagsleikanum.
Ég er næm á umhverfið mitt, smámunasöm og lausnamiðuð,
en umfram allt hönnuður sem vill snerta við fólki.
Menntun
Myndlistaskólinn í Reykjavík 2023-2024
Fornám
Listaháskóli Íslands 2024-
BA í Vöruhönnun
(upcoming) Tincidunt TBA
Ultricies Ultricies,
Congue Nisl
2026
(upcoming) Vestibulum-Vitae
Auctor Ipsum,
Dictumst Ligula,
Porta Libero
2024
Suspendisse
Molestie Aenean,
Facilisis Tellus,
Porta Libero
2024
Ultrices
Parturient Felis,
Pharetra Nibh,
Porta Libero
2023
Eu & Fringilla, Collaborative
Imperdiet with Quam Sodales
2023
Semper
Cursus Tempus,
Porta Libero
2023
Dictum, Elit. Vestibulum
Gravida Congue
2023
Rhoncus Congue
Ullamcorper Suspendisse,
Duis Ornare Porta Libero
2023
Pellentesque Ornare
Porttitor Ultrices,
Sagittis Tempor
2022